Meistaramánuður Steinunnar Eddu
MM
mánudagur, 28. október 2013
ÚFF....
Jæja þá er ég loksins búin að jafna mig á exeminu sem ég fékk fyrir mánuði síðan en það varð hrikalega slæmt í síðustu viku sem varð til þess að ég gat hvorki farið út að hlaupa né í ræktina því að það logsveið að fara út í frostið eða fá svita á þurrkinn. Ég er því bara búin að vera extra dugleg við að föndra, hjálpa til á heimilinu og búin að borða ótrúlega hollt. Í dag er ég svo loksins orðin nokkuð góð enda búin að sparsla mig með sterakremi síðan fyrir helgi. Í kvöld ætla ég því að taka þetta með trompi og hlaupa niðrí World Class og taka brjálaða æfingu!
Let's GO!
miðvikudagur, 23. október 2013
CRAVINGS
Ég get fengið alveg brjálaða sykurlöngun á kvöldin og langar þá helst í eitthvað alveg ofboðslega sætt, í Meistaramánuði þá verður maður að passa sig, enda ótrúlega auðvelt að svindla ef að maður er ekki með hollari kost í boði.
Mér finnst mjög gott að fá mér tilbúna grjónagrautin sem er sykurlaus og fá mér smá hreinan kanil út á og möndlumjólk, algjört nammi, getur fengið þér lítinn skammt og færð ekki samviskubit! xx
mánudagur, 21. október 2013
CHIA
sunnudagur, 20. október 2013
9,1 KÍLÓMETRAR
fimmtudagur, 17. október 2013
LOKSINS
Ég er loksins komin með hleðslutæki og tölvan því komin í lag JESS lofa risastóru bloggi á morgun og hlakka ekkert smá til að setja inn allar fínu myndirnar sem hafa verið teknar í vikunni!
kv.spennti spammarinn xx
kv.spennti spammarinn xx
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)